By drupalviking on
Jæja, eftir að þessi hópur hefur verið sofandi í aaaaaaaaallt of langan tíma ákvað ég að sparka honum í gang aftur. Við hjá Um að gera í samvinnu við Hafnarfjarðarbæ, Árborg og Reykjavíkurborg munum taka gangskör í að þýða Drupal 9 og hærra, með það að leiðarljósi að við getum haft sæmilega vel þýtt Drupal á innan við ári. Það eru alltof margir strengir sem eru óþýddir og, eins og komið hefur fram síðustu tíu ár í athugasemdum í hópnum er fólk ekki alltaf sammála.
En keyrum þetta af stað og notum svo umræður og Slackrásina #translate-is á Drupal Slackinu (drupal.slack.com) til að kasta fram hugmyndum.
Groups audience:

Comments
Media - Margmiðlunarefni
Fyrsti punkturinn sem mig langaði að koma með snýr að orðinu Media. Media er bara efni, málið er að það er líka Content. Snara kemur með uppástungu á orðinu miðlun en mér finnst það orð ekki alveg nógu lýsandi, þar sem við erum að tala um skjöl, myndir, myndbönd og hljóðskrár. Uppástungur vel þegnar.