Jú góðan dag. Hér er meiningin að koma saman nothæfri þýðingu á Grunnkerfi Drupal og helstu kerfisviðbótum (módúlum). Ég heiti Ágúst Örn Pálsson og held eins og er utan um þennan hóp. Þér er frjálst að hafa samband við mig ef þú þarft aukin réttindi hér eða hefur einhverjar spurningar.

Núverandi plan er að fá þá sem eru með einhverjar þýðingar fyrir Drupal 6 eða 7 til að keyra inn sína strengi og koma þannig af stað þýðingarvinnunni. Við ætlum að koma okkur saman um þýðingar á mikilvægum orðum og hugtökum og ætlunin er að fá svo aðila frá Háskóla Íslands til að ritstýra þýðingunni og koma skikki á hana þegar við erum komin aðeins af stað.

Það væri mjög gott ef þið gætuð kynnt ykkur stuttlega í kommentum hér fyrir neðan svo við getum fengið meiri tilfinningu fyrir fólkinu sem við vinnum með.

Groups audience: 

Comments

Ég hef verið að setja upp Drupal vefsíður og kerfi fyrir hina og þessa síðan 2006. Ég byrjaði að nota Drupal eins og svo margir aðrir af því að mér var bent á að nota WordPress en komst svo að því að WP vildi ekki alveg gera það sem ég vildi gera. Ég er hvorki sérmenntaður í íslensku né í forritun en ég tel mig hafa ágætis tök og skilning á Drupal sem og á íslenskunni.

Ég er núverandi stjórnandi fyrir þennan hóp (tæknilega séð) en ætla mér ekkert endilega að vera það að eilífu. Mér finnst mikilvægt að við finnum einhvern aðila sem getur haldið utan um þessa þýðingarvinnu og helst ritstýrt þýðingunum. Þetta er auðvitað allt í vinnslu.

Sælir, ég er að vinna í þvi að sækja pot catalog og keyra po skjölin í gegnum pepipopum sem notar google translate til að þýða msgid'in. Það ætti að gefa þýðingarverkefninu gott start og er auðvitað bara ætlað sem start, betra að hafa eithvað en ekkert til að byrja með.

Er að keyra drupal core: 6.2.0 ; 6.2.2 ; 7.2. og ubercart 6.x-2.4 í gegnum þetta í augnablikinu.

Endilega skoðið http://pepipopum.dixo.net/ .

Ég ætla að reyna að hjálpa ef þetta er enn í gangi? Kemst í það á næstu vikum.

Var að kynnast Drupal, púslaði saman einni síðu í sexunni og lærði helling í leiðinni. Ég er eiginlega bara ástfangin. Sé fyrir mér endalausa möguleika! Ah. (Fór ekki út í sjöuna því þar er eitthvað myndamódúlahallæri)

Hef að auki mikinn áhuga á íslenskunni.

Ég elska anarkismann í veraldarvefnum og open source pælingunni, og þó ég sé ekki forritari sjálf vil ég endilega leggja mitt af mörkum til svona frábærs kerfis eins og Drupal er. Áttaði mig á því að þetta get ég lagt til, íslenskuna.

Blessuð já þetta er ennþá í gagni kanski var bara í smá dvala. En það er fínt ef það koma fleiri að þessu þannig að það séu sem flestir sem taka þátt þá ættium við að fá betri þýðingu.

Við höfum haldið einn fund og þurfum að halda annan fund fljótlega aftur.

Kveðja

Frábært að fá fleiri með. Þetta er ekki beinlínis í rjúkandi gangi en það er mögulega spurning um að koma þessu bara betur af stað.

Þú getur auðveldlega keyrt út þýðinguna sem þú notaðir (ef einhver) á síðunni sem þú varst að smíða og keyrt hana inn sem tillögur hér. Alveg hreint mígandi upplagt.